Lykilmaður áfram hjá Real Madrid

Toni Kroos verður áfram í höfuðborginni.
Toni Kroos verður áfram í höfuðborginni. AFP/Odd Andersen

Þýski knattspyrnumaðurinn Toni Kroos mun skrifa undir nýjan eins árs samning við stórfélag Real Madrid. 

Hinn áreiðanlegi Fabrizio Romano greinir frá en félagið hefur náð munnlegu samkomulagi við Þjóðverjann og nú er aðeins formsatriði að skrifa undir. 

Kroos hefur unnið allt sem hægt er að vinna með Real Madrid. Þá hefur hann spilað 455 leiki með félaginu síðan hann kom frá Bayern München sumarið 2014. 

Þá varð hann einnig heimsmeistari með Þýskalandi sumarið 2014. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert