Stjörnuspá lau. 27. apr. 2024

Stjörnuspá
lau. 27. apr. 2024

21. mars - 19. apríl

Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.

20. apríl - 20. maí

Öllum tíma sem þú eyðir heima hjá þér er vel varið í dag. Sýndu þinn innri mann og láttu tilfinningarnar tala. Þú færð tilboð sem þú veltir mikið fyrir þér.

21. maí - 20. júní

Ráð frá einhverjum þér eldri geta komið þér að gagni í dag og orðið til þess að auka tekjumöguleika þína. Njóttu þess að gleðjast með þeim sem hafa stutt þig og lagt hönd á plóg.

21. júní - 22. júlí

Líttu ekki fram hjá því sem kemur þér fyrst í hug, jafnvel þótt þér finnist það vera fáránlegt. Ekki láta koma þér á óvart.

23. júlí - 22. ágúst

Að sjá broslegu hliðarnar á lífinu og hlæja oft lætur þér líða betur. Það er einhver að reyna að ná sambandi við þig, gefðu viðkomandi séns.

23. ágúst - 22. september

Stundum hrífa athafnir meira en orð og þá áttu hikstalaust að grípa til þinna ráða. Það að grafa höfuðið í sandinn hjálpar ekki þegar taka þarf ákvarðanir, minntu góðan vin á það.

Vog
23. september - 22. október

Dagdraumar hafa alltaf skipt þig miklu máli. Láttu þá samt ekki taka of mikið pláss. Þér verður boðið á deit í kvöld.

23. október - 21. nóvember

Þú mátt eiga von á því að vinur þinn leiti til þín í vandræðum sínum. Ekki taka hluti inn á þig sem þú hefur ekkert um að segja.

22. nóvember - 21. desember

Betur sjá augu en auga og þú færð nýja sýn sem hjálpar þér að leysa málin. Ekki gleyma að sinna líkamlegu heilsunni.

22. desember - 19. janúar

Sköpunargleði þín nær hæstu hæðum þessa dagana. Ekki láta neinn draga úr þér kjarkinn. Þú átt orðið góðan pening sem þú hefur lagt til hliðar, notaðu hann skynsamlega.

20. janúar - 18. febrúar

Einhver mun koma þér á óvart og þú þarft að leyfa þér að njóta augnabliksins. Reyndu að taka til í geymslunni, það er kominn tími á það.

19. febrúar - 20. mars

Láttu það ekki slá þig út af laginu, þótt makinn virki annars hugar. Losaðu þig við gamlar tilfinningar sem þjóna engum tilgangi lengur.

Hvernig eiga merkin saman?

Veldu stjörnumerki úr valgluggunum að neðan og smelltu svo á Birta.
og