Ólafur Stefánsson yfirgefur Aue

Ólafur Stefánsson er á förum frá Aue
Ólafur Stefánsson er á förum frá Aue mbl.is/Styrmir Kári

Ólafur Stefánsson, þjálfari Aue í 2. deild þýska handboltans, lætur af störfum í sumar. Sveinbjörn Pétursson markvörður liðsins er einnig á förum.

Aue er á hraðri niðurleið í 3. deild en liðið tapaði 24:17, fyrir næst neðsta liði deildarinnar, TuS Vinnhorst, í gær. Sveinbjörn hefur leikið í samtals átta ár fyrir Aue, fyrst 2012-2016 og nú aftur undanfarin fjögur ár eftir að hafa leikið með Stjörnunni í millitíðinni. 

Ólafur tók við sem þjálfari Aue í nóvember og gerði samning út yfirstandandi leiktíð.

Sveinbjörn Pétursson hyggst róa á önnur mið í sumar.
Sveinbjörn Pétursson hyggst róa á önnur mið í sumar. Ljósmynd/Þórir Tryggvason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka