Stjarnan gerði grín að Liverpool (myndskeið)

Luke Littler er aðeins 17 ára gamall.
Luke Littler er aðeins 17 ára gamall. AFP

Hinn 17 ára gamli Luke Littler, stærsta stjarnan í pílukastsheiminum í dag, gerði grín að stuðningsmönnum enska knattspyrnufélagsins Liverpool er hann keppti á móti í úrvalsdeildinni í Liverpool-borg.

Littler er stuðningsmaður Manchester United og bauluðu áhorfendur á táninginn. Þrátt fyrir það bar hann sigur úr býtum á mótinu og virtist skemmta sér konunglega.

Hann myndaði tölurnar tvö og núll með höndunum eftir köst og vísaði þannig í 2:0-tap Liverpool gegn grönnunum í Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í vikunni.

Atvikið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert