Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo er ekki á leið til franska stórliðsins París SG.
Þetta tilkynnti Nasser Al-Khelaifi, forseti franska félagsins, í samtali við Sky Sports í vikunni.
Ronaldo, sem er 37 ára gamall, er án félags eftir að enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United rifti samningi hans á dögunum.
Sóknarmaðurinn hefur meðal annars verið orðaður við bæði París SG og Bayern München en líklegast þykir að hann sé á leið til Sádi-Arabíu til Al-Nassr.
„Við erum með Lionel Messi, Neymar og Kylian Mbappé,“ sagði Al-Khelaifi í samtali við Sky Sports.
„Það yrði erfitt að finna pláss fyrir hann hjá okkur en ég óska honum alls hins besta. Hann er frábær leikmaður,“ bætti Al-Khelaifi við.