„Öðruvísi hefði nafnið ekki farið á samninginn,“ segir Unnar Örn Ólafsson, formaður Félags flugmálastarfsmanna (FFR), inntur eftir því hvort hann gangi sáttur frá samningaborði ríkissáttasemjara.
FFR, Sameyki, Isavia og Samtök atvinnulífsins undirrituðu í kvöld langtímasamning sem byggir á stöðugleikasamningnum.
FFR og Sameyki höfðu boðað verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli sem áttu að hefjast síðar í vikunni en þeim hefur nú verið aflýst.
Í samtali við mbl.is segir Unnar undirritunina leggjast vel í alla sem að samningnum hafi komið enda hafi lokametrarnir óneitanlega verið strembnir.
Unnar kvaðst ekki geta upplýst um helsta ágreiningsefnið fyrr en samningar hefðu verið kynntir fyrir félagsmönnum.
„Við förum í það á morgun að undirbúa kynningarefni og tímasetja fundi til að kynna fyrir félagsfólki á allra næstu dögum. Þau eru náttúrulega spennt að sjá hvað er í samningnum svo við þurfum að hafa hraðar hendur.“
Í fyrri viðtölum hefur komið fram að ekki hafi ríkt ósætti um launalið samninganna heldur um sértæk mál starfsmanna sem FFR sagði vera í gildi í öðrum samningum Isavia. Hefur Unnar áður sagt að málin hafi snúið m.a. að vinnuskyldu, greiðslum fyrir aukavaktir og áherslu orlofs í fæðingarorlofi.