Löngu búin að ákveða að skjóta

Selfoss er bikarmeistari árið 2019.
Selfoss er bikarmeistari árið 2019. mbl.is/Árni Sæberg

„Þetta er ólýsanlegt. Það var frábært að skora á þessu augnabliki," sagði Þóra Jónsdóttir í samtali við mbl.is. Þóra var hetja Selfoss, í 2:1-sigri á KR í bikarúrslitum í fótbolta í kvöld. Hún skoraði sigurmark liðsins í framlengingu eftir að hún kom inn á sem varamaður. 

„Alli (Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss) var búinn að segja okkur að sjá allt fyrir okkur; hvernig við ætluðum að skora, vinna tæklingar og þá kemur þetta þegar maður hefur trú. Ég átti að koma með talandann í þetta, baráttuna og halda liðinu svolítið gangandi. Ég átti að hjálpa til við að setja á þær," bætti hún við. 

Þóra skoraði markið sitt með fallegu skoti utan teigs „Ég var tilbúin fyrir utan og vildi fá hann einmitt þarna. Ef ég man rétt, þá fékk ég hann frá KR-ingi og ég var löngu búin að ákveða að skjóta á markið."

Markið var það fyrsta sem Þóra skorar á ferlinum og það kom heldur betur á góðum tímapunkti. „Ég er búin að vera að spara þetta," sagði hún hlæjandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert