Sjö teknir vímaðir við Landeyjahöfn

Bílar streyma hér upp úr nýjum Herjólfi. Það er vissara …
Bílar streyma hér upp úr nýjum Herjólfi. Það er vissara að blása áður en haldið er lengra. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson

Lögreglan á Suðurlandi er með mikið eftirlit við Landeyjahöfn og hafa sjö ökumenn verið stöðvaðir þar undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna frá því að Herjólfur hóf siglingar í nótt.

Allir bílar eru stoppaðir á leið frá höfninni og lögregla vill ítreka að fólki gefst kostur á að blása í áfengismæla í Landeyjahöfn áður en haldið er af stað.

Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook, en lögregla hvetur ökumenn til ábyrgðar og til að halda ekki af stað út í umferðina nema bæði úthvíldir og allsgáðir.

„Ölvaðir örþreyttir ökumenn eiga ekkert erindi út í umferðina,“ segir lögregla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert