Kristjána og Ingibjörg nýir stjórnendur hjá Advania

Ingibjörg Edda Snorradóttir og Kristjana Sunna Erludóttir.
Ingibjörg Edda Snorradóttir og Kristjana Sunna Erludóttir. Ljósmynd: Advania/Jón Snær

Kristjana Sunna Erludóttir og Ingibjörg Edda Snorradóttir hafa tekið við stjórnunarstöðum hjá Rafrænum viðskiptum og Skólalausnum Advania.

Kristjana Sunna er nýráðin til fyrirtækisins sem deildarstjóri þjónustu og ráðgjafar og Ingibjörg Edda hefur tekið við stöðu deildarstjóra hugbúnaðarþróunar eftir sex ára starf sem forritari hjá Advania, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Kristjana Sunna er með MBA gráðu frá EAE Business School í Barcelona, og Bs.c í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Hún hefur meðal annars starfað sem þjónustu- og markaðsstjóri hjá Swiss Color Iceland, ráðgjafi og viðskiptastjóri hjá upplýsingatæknifyrirtækinu Next Link Group og alþjóðlega lyfjafyrirtækinu Roche í Barcelona.  Að auki hefur hún starfað sem sérfræðingur hjá Valitor á erlendum mörkuðum og sem stjórnandi og sérfræðingur í sölu og þjónustu hjá Símanum.

Ingibjörg Edda er með Bs.c gráðu í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað síðan árið 2018 sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá Skólalausnum Advania.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK