Nýtt hótel í Bríetartúni

Byggt verður yfir bílastæðið í forgrunni myndarinnar en það er …
Byggt verður yfir bílastæðið í forgrunni myndarinnar en það er við hlið Frímúrarareglunnar. mbl.is/Hari

Jens Sandholt segir áformað að taka nýtt Hilton-hótel í Bríetartúni í notkun sumarið 2026.

Jens keypti lóðina, Bríetartún 5, af Frímúrarareglunni í gegnum félag sitt Eignalausnir. Á lóðinni er nú bílastæði sem meðal annars reglubræður hafa notað þegar þeir sækja samkomur.

Jens segir skipulagið í vinnslu og að stefnt sé að því að hefja framkvæmdir fyrir áramót. Félagið Bohemian hotels ehf. hefur verið stofnað utan um rekstur hótelsins. Jens á helminginn í því félagi, í gegnum móðurfélagið Luxor, en Magnea Þórey Hjálmarsdóttir og Þorsteinn Örn Guðmundsson eiga hvort um sig fjórðungshlut í gegnum félag sitt, Concordia ehf.

Bohemian hotels hefur jafnframt gert sérleyfissamning við Hilton-keðjuna vegna 70 herbergja hótels á Akureyri. Hótelið á Akureyri mun heita Skáld hótel og verða rekið undir merkjum Curio Collection-keðjunnar hjá Hilton. Félag í eigu Jens mun byggja og eiga hótelið á Akureyri. Jens breytti á sínum tíma stórhýsi við Mýrargötu í Marina-hótelið sem er eitt af Icelandair-hótelunum. Magnea Þórey er þekkt úr hótelgeiranum en hún var framkvæmdastjóri Icelandair-hótelanna.

Hótelið verður byggt á þessari lóð.
Hótelið verður byggt á þessari lóð. mbl.is/Árni Sæberg

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK