Erling lætur af störfum hjá Ljósleiðaranum

Stjórn Ljósleiðarans og Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri félagsins, hafa gert …
Stjórn Ljósleiðarans og Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri félagsins, hafa gert með sér samkomulag um starfslok. Erling Freyr átti sjálfur frumkvæði af starfslokunum. Samsett mynd

Stjórn Ljósleiðarans og Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri félagsins, hafa gert með sér samkomulag um starfslok, að því er fram kemur í tilkynningu.

Erling Freyr mun láta af störfum frá og með 30. júní næstkomandi en vera stjórn félagsins innan handar næstu mánuði. Erling Freyr átti sjálfur frumkvæði af starfslokunum.

Dagný Jóhannesdóttir, staðgengill framkvæmdastjóra, mun taka við starfinu þar til nýr framkvæmdastjóri tekur til starfa. Dagný hefur starfað hjá Ljósleiðaranum frá árinu 2015 og þar áður hjá 365 miðlum.

Staða framkvæmdastjóra verður auglýst á næstu dögum.

Haft er eftir Birnu Bragadóttur, stjórnarformanni Ljósleiðarans, að Erling Freyr hafi unnið frábært starf sem framkvæmdastjóri frá því hann tók við fyrir rúmum átta árum.

„Árangurinn undir stjórn Erlings hefur verið eftirtektarverður og skilur hann við félagið á afskaplega góðum stað á metnaðarfullri vegferð. Ég vil fyrir hönd stjórnar þakka Erling fyrir vel unnin störf og óska honum alls hins besta. Verkefni okkar nú er að finna leiðtoga til þess að halda áfram þeirri spennandi uppbyggingu sem Ljósleiðarinn vinnur að. Þangað til mun Dagný, sem er afar reyndur stjórnandi og þekkir félagið út og inn, taka við rekstri Ljósleiðarans.“

Haft er eftir Erlingi Frey að honum þyki afskaplega vænt um Ljósleiðarann og sé þakklæti efst í huga á tímamótunum.

„Verkefnin sem framundan eru skipta miklu máli fyrir íslenskt samfélag og ég óska arftaka mínum alls hins besta. Mín bíða spennandi verkefni sem verður sagt frá síðar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK