Íslandsmeistarar Vals eru einum sigri frá því að komast í úrslit Íslandsmóts kvenna í handbolta eftir afar sannfærandi útisigur á ÍBV í kvöld, 34:23, í öðrum leik liðanna.
Er staðan í einvíginu nú 2:0 fyrir Val, en Valskonur unnu einnig sannfærandi stórsigur í fyrsta leik.
Rétt eins og í fyrsta leik á heimavelli lagði Valur grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik, en staðan eftir hann var 18:9 og eftirleikurinn auðveldur.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir skoraði ellefu mörk fyrir Val, þar af þrjú víti. Elín Rósa Magnúsdóttir gerði fimm mörk og Hafdís Renötudóttir varði 15 skot í markinu.
Birna Berg Haraldsdóttir var markahæst hjá ÍBV og Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir og Þóra Björg Stefánsdóttir komu þar á eftir með fjögur hvor. Öll mörk Hrafnhildar komu af vítalínunni.
ÍBV | 23:34 | Valur | Opna lýsingu Loka | |
---|---|---|---|---|
60. mín. Agnes Lilja Styrmisdóttir (ÍBV) skoraði mark Gerir vel fyrir utan á nærstöngina. | ||||
Augnablik — sæki gögn... |