Glæsileg afgreiðsla landsliðsmannsins (myndskeið)

Sævar Atli Magnússon fagnar markinu í kvöld.
Sævar Atli Magnússon fagnar markinu í kvöld. Ljósmynd/Lyngby

Sævar Atli Magnússon skoraði huggulegt mark fyrir Lyngby er liðið gerði 1:1-jafntefli á heimavelli gegn Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.

Leiknismaðurinn afgreiddi boltann með glæsibrag upp í skeytin úr teignum eftir sendingu frá Kolbeini Birgi Finnssyni.

Markið má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert