Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið

Lewis Hamilton.
Lewis Hamilton. AFP/Andrej Isakovic

„Ég skrifaði undir hjá Mercedes í sumar og á þeim tíma sá ég framtíð mína með liðinu en síðan kom þetta tækifæri og ég tók þessa ákvörðun,“ sagði Lewis Hamilton sem yfirgefur Mercedes og mun keyra fyr­ir Ferr­ari á næsta Formúlu-1 tíma­bili.

„Þetta var erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið, ég hef verið hjá liðinu í 26 ár og þetta hefur verið ótrúlegur tími og við höfum gert ótrúlega hluti. Það er eitthvað sem ég er mjög stoltur af en mér finnst tími kominn til þess að hefja næsta kafla,“ sagði Hamilton en félagsskiptin komu mörgum á óvart.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert