Miðrýmið í Miðhrauni horfið

Enn er unnið að hreinsunarstarfi í brunarústum í Miðhrauni en miðjurými hússins, þar sem eldsupptök urðu í lagerrými Icewear, hefur nú verið rifið alveg til grunna. Securitas vaktar svæðið ennþá en það er nú á forræði tryggingafélaga.

Tæknideild lögreglunnar, slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og Mannvirkjastofnun hafa komið að rannsókn brunans. En lögregla lagði hald á gögn og muni til frekari rannsókna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert