Nýi kærastinn algjör draumur

Benny Blanco og Selena Gomez staðfestu samband sitt í desember …
Benny Blanco og Selena Gomez staðfestu samband sitt í desember í fyrra. Samsett mynd

Leik- og söngkonan Selena Gomez er ástfangin og hefur sjaldan liðið betur. Nýi maðurinn í lífi Gomez heitir Benny Blanco og er þekktur upptökustjóri. Parið opinberaði samband sitt í lok síðasta árs. 

Gomez opnaði sig um sambandið í hlaðvarpsþætti að því fram kemur á vef People. Hún vildi ekki fara of mikið út í smáatriði en sagði mikilvægt að finna fyrir virðingu frá maka. 

„Það er líka mikilvægt að treysta á einhvern sem skilur heiminn sem ég tilheyri. En ég verð að segja að ég hef aldrei verið eins örugg. Þetta hefur verið virkilega yndislegt og ég hef bara þroskast sem er æðislegt.“

Parið staðfesti samband sitt í desember í fyrra en þau hafa vitað hvort af öðru í mörg ár. Þau unnu saman að laginu „I Can’t Get Enough“ árið 2019. 

Selena Gomez er ánægð með kærastann.
Selena Gomez er ánægð með kærastann. AFP/ Michael TRAN
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er gott að þekkja sín eigin takmörk og þá ekki síður að virða þau þegar á það reynir. Ef þú fæst ekki við það sem þú hefur áhuga á getur lífið svo sannarlega verið letjandi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er gott að þekkja sín eigin takmörk og þá ekki síður að virða þau þegar á það reynir. Ef þú fæst ekki við það sem þú hefur áhuga á getur lífið svo sannarlega verið letjandi.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Anna Sundbeck Klav