Lilja Kristín Birgisdóttir hefur hefur tekið við nýju starfi hjá Sýn. Hún mun hér eftir veita nýrri deild markaðs- og sjálfbærni forstöðu. Í tilkynningu segir að Lilja Kristín muni leiða uppbyggingu vörumerkja Vodafone, Stöðvar 2, Stöð 2 Sport, Vísis, Bylgjunnar, FM957, X977 og Já. Hún hefur síðasta árið starfað sem forstöðumaður markaðssamskipta og sjálfbærni hjá Vodafone.
„Við leggjum ríka áherslu á að einfalda ákvarðanatöku og boðleiðir í rekstri Sýnar og er sameining teyma í markaðsmálum innan Sýnar liður í þeirri vegferð. Fjöldi öflugra vörumerkja eru innan samstæðu Sýnar með það að markmiði alla daga að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og stuðla að sjálfbærni í rekstri. Við teljum að nýja deildin muni efla ímynd Sýnar enn frekar ásamt því að styrkja vegferð okkar í sjálfbærni, ” er haft eftir Herdísi Dröfn Fjeldsted, forstjóra Sýnar í tilkynningunni. Þar er jafnframt haft eftir Lilju Kristínu að hún taki við starfinu full tilhlökkunar.