Átta ríki ekki lengur skattaskjól

AFP

Evrópusambandið mun fjarlægja ríki eins og Panama og Suður-Kóreu auk sex annarra ríkja af lista yfir skattaskjól á næstunni. Þetta herma heimildir AFP innan úr stjórnkerfi ESB. Tilkynnt verður um þetta á fundi fjármálaráðherra ríkja ESB í næstu viku.

Auk Panama og S-Kóreu verða Sameinuðu arabísku furstadæmin fjarlægð af listanum sem og Túnis, Mongólía, Macao, Grenada og Barbado.

Ekki er langt síðan listinn svarti var gerður opinber en um 17 ríki voru á listanum. Mikil reiði greip um sig meðal ráðamanna ríkja á listanum sem virtust ekki hafa hugmynd um að ríki þeirra væru á svörtum lista sem skattaskjól.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK