Inn á vefsíðu stangveiðifélagsins Lax-á er greint frá því að sleppingu sjógönguseiða í Eystri Rangá hafi verið stórauknar síðastliðið vor miðað við fyrri ár. Í sumar gengu þessar sleppingar vel og voru þær þrefalt meiri en árin á undan.
Menn vonast að með því komi veiði að aukast verulega frá því sem var í sumar þegar heildarveiðin var 2143 laxar sem var það nokkuð undir væntinugum. Telja menn að veiðin sumarið 2018 muni í það minnsta að enda með 6000 löxum á land verði öll ytri skilyrði með venjubundum hætti. Í ánni eru leyfðar 18 stangir og veitt á 9 svæðum.
Í nágranna ánni, Ytri Rangá, var settur kraftur í seiðasleppingar í kjölfarið á niðursveiflu þar árið 2014 þegar heildarveiðin var upp á rétt rúma 3000 laxa. Mun meira af seiðum fór út í kjölfarið og árið seinna veiddust þar rúmir 8800 laxar. Árið 2016 rúmir 9300 og síðastliðið sumar komu þar 7451 á land.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |