Bandaríski körfuknattleiksmaðurinn Blake Griffin hefur tilkynnt að skórnir séu komnir á hilluna eftir 14 tímabil í NBA-deildinni.
Griffin, sem er 35 ára gamall, lék síðast með Boston Celtics á síðasta tímabili.
Á ferlinum vakti kraftframherjinn athygli fyrir glæsilegar troðslur og var upp á sitt besta á árunum 2011 til 2015 þegar hann var valinn í stjörnulið NBA-deildarinnar fimm tímabil í röð.
Auk þess vann Griffin troðslukeppni deildarinnar árið 2011 og var einu sinni til viðbótar, árið 2019, valinn í stjörnuliðið.
Hann var valinn fyrstur allra í nýliðavalinu árið 2009, af LA Clippers, og lék með liðinu til 2018. Einnig var Griffin á mála hjá Detroit Pistons í þrjú ár og eitt ár hjá Brooklyn Nets.