Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, var nokkuð gagnrýninn á lið sitt þrátt fyrir 6:1-stórsigur á Panama á heimsmeistaramótinu í Rússlandi í dag.
Leikurinn var liður í annarri umferð G-riðilsins og sigurinn tryggði Englendingum sæti í 16-liða úrslitunum en þeir mæta Belgíu í lokaumferð riðlakeppninnar í úrslitaleik um toppsætið. Southgate vill meina að hans sveinar verði að gera enn betur, ætli þeir sér langt í keppninni.
„Mér líkaði ekkert sérlega vel við frammistöðuna. Við vorum ekki góðir í byrjun og ég var ósáttur með markið sem við fengum á okkur í lokin,“ sagði Southgate við blaðamenn eftir leik.
„Ég er að vera mjög gagnrýninni, vissulega. Við spiluðum vel á köflum og þetta var gott fyrir sjálfstraustið. Við þurfum nú að horfa til leiksins gegn Belgíu og reyna að vinna hann.“