Framlengdi í Hafnarfirðinum

Aldís Guðlaugsdóttir í leik með FH á síðasta tímabili.
Aldís Guðlaugsdóttir í leik með FH á síðasta tímabili. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aldís Guðlaugsdóttir, markvörður FH í knattspyrnu, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildir út tímabilið 2026.

Aldís er tvítug og hefur leikið með FH undanfarin tvö tímabil, fyrst að láni frá Val sumarið 2022 þegar Hafnfirðingar komust upp úr 1. deild.

Hún var í lykilhlutverki á síðasta tímabili þegar nýliðar FH stóðu sig einkar vel og höfnuðu í sjötta sæti Bestu deildarinnar.

Svo vel stóð Aldís sig að hún var valin í A-landsliðið síðastliðið haust, þó hún bíði enn eftir fyrsta landsleiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert