Albert Guðmundsson, sóknarmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, hefur tjáð sig stuttlega eftir vonbrigðin sem fylgdu því að tapa 2:1 fyrir Úkraínu í úrslitaleik umspils um laust sæti á EM 2024 í gærkvöldi.
„Grátlega nálægt þessu. Takk fyrir allan stuðninginn. Þangað til næst,“ skrifaði Albert á Instagramaðgangi sínum.
Hann skoraði eina mark Íslands í leiknum í gærkvöldi og þrennu í 4:1-sigrinum á Ísrael í undanúrslitum umspilsins á fimmtudagskvöld.
Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, meinaði fjölmiðlum að ræða við Albert að leik loknum gegn Ísrael í Búdapest í Ungverjalandi og það sama var uppi á teningnum í Wroclaw í Póllandi í gærkvöldi.
Leikmaðurinn sneri aftur í íslenska landsliðshópinn fyrir nýafstaðið landsliðsverkefni eftir fjarveru í kjölfar þess að hann var kærður fyrir kynferðisbrot. Málið var látið niður falla, en sú ákvörðun hefur verið kærð til ríkissaksóknara.