Alls hafa sjö íslenskir ríkisborgarar í Ísrael verið í sambandi við borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins en þrír þeirra hafa þegar yfirgefið landið. Meira
„Þá allt í einu mætir ákæruvaldið fyrir Landsrétt með refsiþyngingarkröfu og vill fá þyngri dóm en átta árin sem þeim fannst sjálfum of mikið í héraði,“ segir Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður sem fer yfir Ólafsfjarðarmálið og sýknudóm Steinþórs Einarssonar fyrir Hæstarétti í dag. Meira
Vladimír Pútín forseti Rússlands sagði að samkomulag til að binda enda á átökin milli Ísraels og Írans væri mögulegt og að árásir Ísraels á Íran hefðu leitt til „samstöðu“ í írönsku samfélagi í kringum forystu landsins. Meira
Hvað ætlaðist hvalurinn sem sinnti upp í fjöru við Geldinganes fyrir? Ruglaðist hann í ríminu eða var hann einfaldlega kominn með nóg? Þeirri spurningu er varpað fram í nýjasta þætti Spursmála. Meira
Jarðskjálfti sem átti upptök sín á Krýsuvíkursvæðinu fannst vel á suðvesturhorni landsins. Meira
Ökutækið sem var við vegavinnu við Norðfjarðará var hlaðið þrjú þúsund lítrum af málningu og þrjú þúsund lítrum af olíu þegar eldurinn kviknaði. Meira
Vinsælustu orkudrykkirnir hérlendis eru einu milligrammi af koffínmagni frá reglum um hámarks koffínmagn sem selja má til ungmenna yngri en 18 ára. Meira
Guðrún Hafsteinsdóttir segir dómsmálaráðherra hafa látið fyrrverandi yfirmann sinn, ríkissaksóknara, taka ákvörðun fyrir sig. Meira
Strætisvagn og fólksbíll skullu saman á horni Hverfisgötu og Klapparstígs fyrr í kvöld. Einn var fluttur á bráðamóttöku í kjölfarið. Meira
Frumvarp Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila var samþykkt á Alþingi í dag. Meira
Starfshópur sem heilbrigðisráðherra skipaði árið 2023 hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum og greinargerð um endurskipulagningu og eflingu talmeinaþjónustu við börn. Meira
Síðustu daga hafa fjölmargar útskriftarveislur verið haldnar víða um land í tilefni af brautskráningu nemenda úr háskólum og framhaldsskólum. Í Reykjanesbæ vakti sérstaka athygli að fjórir af ellefu bæjarfulltrúum útskrifuðust nú um helgina af ólíkum sviðum. Meira
Grunsamlegar mannaferðir og lausir hestar voru meðal verkefna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag en frá því klukkan 5 í morgun sinnti hún 79 málum. Meira
Talsvert magn af olíu var í ökutækinu sem kviknaði í á Norðfjarðarvegi laust fyrir klukkan 16 í dag. Meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar mun fljúga yfir borginni næstu klukkustundir í leit að Sigríði Jóhannsdóttur. Meira
Í sumar eru liðin tíu ár síðan Valdimar Sverrisson, ljósmyndari og uppistandari, missti sjónina í kjölfar aðgerðar þar sem æxli var fjarlægt úr heila hans. Af því tilefni ætlar hann að hlaupa 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu 23. ágúst og safna áheitum fyrir Grensásdeild Landspítalans. Meira
Vegna elds í bifreið á Norðfjarðarvegi við Norðfjarðará eru göngin milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar nú lokuð. Unnið er að slökkvistarfi. Meira
Minnihluti stjórnenda í fyrirtækjum finnst jafnlaunavottun mikilvæg, þá eru 51% þeirra sem finnst hún lítilvæg, þetta kemur fram í nýlegri könnun Prósent. Meira
Meistaradeild Samtaka iðnaðarins segja að um 600 til 1.000 nemendum sé synjað um skólavist í iðn- og tækninámi á ári hverju. Ástæðuna telja þeir vera skort á aðstöðu, þ.e. fjármagni og húsnæði. Samtökin kalla eftir því að framkvæmdum við verknámsskóla verði flýtt. Meira
Bíladagar á Akureyri gengu framar vonum skipuleggjenda. Mikil aðsókn var á hátíðina og veðurguðirnir voru henni hliðhollir. Meira
Vesturbæjarlaugin verður lokuð lengur en gert var ráð fyrir. Meira
Hæstiréttur staðfesti sýknudóm yfir Steinþóri Einarssyni, sem ákærður var fyrir að verða Tómasi Waagfjörð að bana á Ólafsfirði árið 2022. Staðfesti Hæstiréttur þar niðurstöðu Landsréttar en áður hafði Steinþór verið dæmdur í 8 ára fangelsi í héraðsdómi. Meira
Rúnar Sigurjónsson, varaþingmaður Flokks fólksins, er hneykslaður á mótmælum félagsins Ísland-Palestína á 17. júní. Segir hann í Facebook-færslu að í gær hafi fólk mótmælt með hrópum og köllum, öskrum og skrílslátum. Það telur Rúnar óviðeigandi og setja svip sinn á hátíðleika dagsins. Meira
Ef vinstri meirihlutinn í Reykjavík heldur velli í næstu sveitarstjórnarkosningum er ljóst að árangur fyrir borgarbúa verður lítill. Meira
dhandler