Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins hefur litið dagsins ljós. Félagið hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum með myndum af æfingum, þar sem skrautlegar grímur og mikilfengleg brögð eru í forgrunni. Meira
Herdís Björk Brynjarsdóttir, teymisstjóri markaðseftirlits hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, segir fregnir af útbrotum barns vegna vöru frá Temu ekki koma á óvart. Meira
Verð á almennum neysluvörum á Íslandi var 62% hærra á síðasta ári en að jafnaði í ríkjum Evrópu samkvæmt nýrri úttekt Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins. Verðlag á mat og drykk var 44% hærra á Íslandi en í Evrópusambandinu. Meira
Enginn hlaut aðalvinninginn í Lottó-útdrætti kvöldsins og því verður potturinn fjórfaldur næsta laugardag. Meira
Einhvers staðar hef ég ort um það að allt breytist en lífið hættir ekki. Maður leggur upp á ný, heldur áfram, en frá einhverjum nýjum stað og á allt annan hátt en áður hafði verið. Meira
„Þarna getum við sameinað alla leikskólastarfsemina á einum stað. Hún hefur verið dálítið dreifð,“ segir Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri á Seltjarnarnesi. Seltjarnarnesbær hefur auglýst útboð vegna byggingar nýs leikskóla við Suðurströnd Meira
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, fyrrverandi matvælaráðherra, var viðstödd þegar um 60 grindhvalir syntu á land í Ólafsfirði fyrr í dag. Hún segir að álíka atburður hafi ekki átt sér stað í Ólafsfirði í tæpa öld. Meira
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar við afgreiðslu veiðigjaldafrumvarpsins með ólíkindum. Meira
Tugir grindhvala hafa gengið á land í Ólafsfirði. Hinrik Wöhler, staðgengill upplýsingafulltrúa Landsbjargar, segir björgunarsveitir á Tröllaskaga og Akureyri hafa verið boðaðar út. Meira
Þjófur braust inn í íbúð í Laugardalnum og lét greipar sópa á meðan þau sem búa í íbúðinni voru heima í dag. Meira
Aleksandr Domalchuk-Jónasson er einn í efsta sæti á opna Íslandsmótinu í skák á Blönduósi fyrir lokaumferðina. Aleksandr hefur 6,5 vinning eftir að hafa lagt Hilmi Frey Heimisson að velli í tvísýnni skák. Meira
Héraðsdómur Reykjaness hefur staðfest gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um alvarlega líkamsárás í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Meira
Hin árlega sumarsólstöðuganga fer fram í Viðey í kvöld. Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögusafnsins, leiðir gönguna en hann hefur gert það undanfarin ár. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, er jafnframt sérstakur gestur göngunnar. Meira
Þingfundur um veiðigjöld sem hófst á Alþingi klukkan 10:30 í morgun stendur enn yfir. Önnur umræða um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra er eina málið á dagskrá. Meira
Umsóknarfrestur í háskólanám fyrir haustið 2025 er nú liðinn og birtar tölur sýna metfjölda umsókna víða um land. Konur eru í miklum meirihluta meðal umsækjenda og sumar námsleiðir fá fleiri umsóknir en nokkru sinni fyrr Meira
Sigríður Jóhannsdóttir, 56 ára Kópavogsbúi, sem leitað hefur verið að frá því um síðustu helgi, fannst heil á húfi skömmu eftir hádegi í dag. Meira
Einn var fluttur til Reykjavíkur á sjúkrahús með alvarlega stunguáverka eftir líkamsárás í Reykjanesbæ í gærkvöldi. Lögreglan á Suðurnesjum fékk tilkynningu árásina klukkan rétt rúmlega tíu í gærkvöldi. Meira
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt fyrir klukkan 13 í dag vegna göngumanns sem var í sjálfheldu í um 1.300 metra hæð í fjallinu Bónda skammt frá Hrafnagili. Maðurinn var orðinn kaldur og hrakinn. Meira
Samverkandi þættir skila sér í háu verðlagi á mat og drykk á Íslandi í samanburði við aðildarríki Evrópusambandsins. Meðal þátta sem hafa áhrif er mikill kaupmáttur, hærri laun, fákeppni á markaði, kostnaður íslensku krónunnar og háir verndartollar á vörur. Meira
Mótsstjórn Norðurálsmótsins, sem fer fram á Akranesi um helgina, boðar refsingu fyrir þá sem stela rafmagni á tjaldsvæðum með því að tengja á milli. Rafmagnsnotkun hefur verið of mikil á tjaldsvæðum og 28 öryggi brunnið yfir nú þegar. Meira
Hildur Sverrisdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Flokks fólksins, urðu þess heiðurs aðnjótandi að hljóta blessun Leós páfa XIV í Vatíkaninu í dag. Meira
Þingfundur hófst á Alþingi klukkan 10:30 í morgun þar sem önnur umræða um frumvarp atvinnuvegaráðherra um veiðigjöld er eina málið á dagskrá. Meira
Menningar- og íþróttaráð samþykkti á fundi sínum í gær samning milli Reykjavíkurborgar og körfuboltafélagsins Aþenu, um styrk vegna íþróttastarfs. Samningurinn var samþykktur einróma. Meira
Framkvæmdir við endurbætur á Kaffivagninum við Grandagarð hafa reynst mun tímafrekari en upphaflega var áætlað. Axel Óskarsson veitingamaður segir í samtali við Morgunblaðið að húsnæðið hafi verið í mun verra ásigkomulagi en talið var Meira
dhandler