Tillaga sem sögð var felld í fundargerð bæjarráðs Hveragerðis í dag reyndist við nánari skoðun vera samþykkt. Bæjarstjórinn segir fulltrúa meirihlutans sáttan við samþykkt tillögunnar. Meira
Hafliði Kristjánsson, íbúi í Kópavogi, telur kjörið að gera golfvöll á landinu fyrir ofan Austurkór. Hefur hann lagt á sig talsverða vinnu til að afla hugmyndinni fylgis. Meira
Gríðarleg fjölgun hefur orðið á læknum sem stunda sérnám á Íslandi á undanförnum árum samhliða auknu sérnámsframboði á Íslandi. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins. Meira
Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar og fyrrverandi yfirlögregluþjónn, segir að lögreglumál er snúa að börnum hafi reynst honum erfiðust að eiga við andlega þegar hann starfaði við löggæslu. Átti það bæði við þegar um var að ræða heimilisofbeldi og þegar börn dóu. Meira
Liðssafnaðar er nú leitað í Skálholt þar sem til stendur um næstu helgi að flytja stórt bókasafn úr turni dómkirkjunnar þar yfir í nálæga byggingu. Meira
Rannsókn á banaslysi í Brúará stendur enn yfir. Kona sem fannst látin í Brúará fyrr í mánuðinum var á ferðalagi með samferðamanni sínum þegar slysið varð. Rætt hefur verið við vitni. Meira
Lögreglan telur líkur á því að netglæpamenn fylgist með póstsendingum sem fólk á von á eftir að hafa pantað sér varning á netinu. Reyna glæpamennirnir svo að innheimta lágt gjald í nafni sendingarfyrirtækis og bjóða t.a.m. heimsendingu. Meira
Ekið var á barn í Breiðholti rétt fyrir klukkan fjögur í dag. Meira
Fulltrúar lögreglu, sveitarfélags Bláskógarbyggðar, Ferðamálastofu, Landsbjargar, Safe Travel, Náttúruverndarstofnunar, Markaðsstofu Suðurlands og landeigenda funduðu til að ræða öryggismál við Brúará í dag. Meira
Lög um neyslurými til skaðaminnkunar hafa nú verið rýmkuð. Meira
Landsréttur hefur dæmt Bláfugl ehf. til að greiða 10 fyrrverandi flugmönnum félagins samtals 55,5 milljónir króna í skaðabætur vegna ólögmætra uppsagna. Meira
Lögreglumenn frá Írlandi eru væntanlegir til Íslands í næstu viku í tengslum við rannsókn þeirra á hvarfi Jóns Þrastar Jónssonar, en síðast er vitað um ferðir hans í Dyflinni á Írlandi í febrúar 2019. Meira
Harðar athugasemdir hafa borist Reykjavíkurborg vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar við Birkimel 1. Um er að ræða lóð þar sem nú er bensínstöð, en nú liggja fyrir áform um að reisa þar 4-5 hæða fjölbýlishús með 42 íbúðum. Meira
Umboðsmaður Alþingis metur nú hvort hann hyggist taka til skoðunar málsmeðferðartíma Útlendingastofnunar í málum vegna afgreiðslu umsókna um íslenskan ríkisborgararétt og hefur af þessu tilefni ritað stofnuninni bréf. Meira
Stefnt er að því að hefja framkvæmdir við stækkun Karmelklaustursins í Hafnarfirði í haust og verður verkið boðið út fljótlega. Nunnurnar hófu söfnun heima og erlendis fyrir um fjórum árum og gerðu kynningarmyndband, sem er á Youtube, til að vekja… Meira
Víða um land hafa ¡Hola!-skilti skotið upp kollinum við holur í vegum. Sökudólgurinn er Nicolas, sem hefur það markmið að merkja allar holur á Íslandi í samstarfi við Colas Ísland ehf. „Með þessu vonumst við til að vekja athygli á ástandi vega hringinn í kringum landið og hvetja fólk um leið að tilkynna holur sem verða á vegi þeirra,“ segir Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas. Meira
Forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar harmar að Þingeyringar upplifi að ekki sé hlustað á þá innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Hún telur vilja og svigrúm til að gera betur fyrir hendi. Meira
Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar, segist styðja veiðigjaldafrumvarpið heilshugar eins og það liggur fyrir í þinginu núna. Hann segir að það sé búið að mæta hans helstu áhyggjum. Meira
Jón Ívar Einarsson, sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum, segir biðlista eftir aðgerð við endómetríósu hjá Klíníkinni sífellt lengjast. Um helmingur þeirra sem greindir eru með sjúkdóminn endi á því að þurfa aðgerð. Meira
„Ég stóð bara hérna úti á palli þegar þeir komu aðvífandi, fimm lögreglubílar,“ segir Reynir Þorsteinsson, eigandi Gunnubúðar á Raufarhöfn, en búðin hans er um 20 metra frá húsi þar sem lögregluaðgerðir í tengslum við fíkniefnaframleiðslu fóru fram í gær. Meira
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur formlega tekið við kvörtun Arnars Sigurðssonar gegn íslenska ríkinu vegna einokunarréttar ÁTVR á heildsöludreifingu tóbaks. Meira
Skúringatæki sem festist utan á segulómtæki Landspítalans við Hringbraut fyrir viku síðan hefur verið fjarlægt. Meira
Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri yfir síðustu helgi. Margt fólk var í bænum, meðal annars vegna Bíladaga og júbílantahátíðar en 360 mál eru skráð hjá lögreglu og voru fimmtán kærðir fyrir að kasta af sér vatni í miðbænum. Meira
Fjörutíu manns komu að aðgerðum lögreglu í tengslum við fíkniefnaframleiðslu í gær. Megnið af þeim voru lögreglumenn en einnig sérfræðingar. Meira
dhandler