mbl | sjónvarp

Grafin gæs á laufabrauði með trufflumajónesi

MATUR  | 7. desember | 7:00 
Það þarf ekki alltaf að vera flókið að hafa glæsilegan og bragðgóðan hátíðarmat.

Það þarf ekki alltaf að vera flókið að hafa glæsilegan og bragðgóðan hátíðarmat. Hér er einstaklega einföld uppskrift að gæs sem er engu að síður einkar bragðgóð og falleg á að líta. 

Grafin gæs

  • 2 stk gæsabringur
  • 40 g salt
  • 40 g sykur
  • 10 g einiber
  • 5 g rósapipar
  • 2 g fennelfræ
  • 1 stk anisstjarna

Aðferð:

  1. Bringurnar eru sinahreinsaðar.
  2. Einiber, rósapipar, fennelfræ og anís er allt ristað á pönnu og mulið niður í morteli.
  3. Blandið saman kryddum ásamt salti og sykri.
  4. Dreifið vel á bringurnar og plastið þær vel inn.
  5. Leyfið að vera í kæli í tvo daga, skolið í köldu vatni og þerrið vel.
  6. Skerið gæsina þunnt í sneiðar.

Trufflumajónes

  • 200 g majónes
  • 2 msk. truffluolía
  • Salt og pipar eftir smekk

Aðferð:

  1. Allt hrært saman í skál.

Marineruð bláber

50 g bláber
50 g sykur
10 g edik

Aðferð:

  1. Blandið öllu saman í skál og leyfið að vera í kæli yfir nótt.

 

Jólauppskriftir Hagkaupa
Gefið var út sérblaðið Hátíðarmatur í samstarfi við Hagkaup þann 7. desember 2023 þar sem útlistaðar voru uppskriftir að dýrðlegum jólamat.
Loading