mbl | sjónvarp

Timían-smjörsteiktar perur

MATUR  | 7. desember | 6:45 
Smjörsteiktar perur eru ómissandi meðlæti með hátíðarsteikinni enda góðar á bragðið og fallegar á að líta.

Timían-smjörsteiktar perur

  • 4 stk. perur
  • 150 g smjör
  • 25 g timían
  • 2 g salt

Aðferð:

  1. Skrælið perurnar og skerið í fjóra bita.
  2. Bræðið smjör á pönnu og bætið timían á pönnuna.
  3. Perurnar eru steiktar í smjöri við miðlungshita þar til þær eru mjúkar í gegn.
  4. Gott er að ausa smjöri yfir perurnar allan tímann.
  5. Þetta er skreytt með rauðum skógarsúrum.
Jólauppskriftir Hagkaupa
Gefið var út sérblaðið Hátíðarmatur í samstarfi við Hagkaup þann 7. desember 2023 þar sem útlistaðar voru uppskriftir að dýrðlegum jólamat.
Loading