mbl | sjónvarp

Púrtvínssósa með rifsberjum

MATUR  | 7. desember | 6:55 
Púrtvínssósa hentar einkar vel með villbráð eða rauðu kjöti.

Hér má sjá uppskrift af púrtvínssósu sem hentar einkar vel með villbráð eða rauðu kjöti.

Púrtvínssósa með rifsberjum

  • ​500 ml nautasoð
  • 500 ml kjúklingasoð
  • 75 g balsamedik
  • 75 g púrtvín
  • 10 g púðursykur
  • 2 stk. skalottlaukar
  • 1 hvítlauksrif
  • 5 korn svartur pipar
  • 3 kardimommur
  • 2 anísstjörnur
  • 10 stk. fennelfræ
  • 5 stk. einiber
  • 1 grein rósmarín
  • 35 g smjör
  • 25 g rifsber

Aðferð:

  1. ​Skerið lauk og hvítlauk í sneiðar. Brúnið vel í potti við miðlungshita.
  2. Bætið kryddi og púðursykri út í.
  3. Hellið víni og ediki yfir og sjóðið niður í síróp.
  4. Hellið soðinu út í sírópið.
  5. Sjóðið sósuna niður um helming og bætið rósmaríni út í.
  6. Sigtið sósuna.
  7. Bætið rifsberjum út í ásamt smjöri.
Jólauppskriftir Hagkaupa
Gefið var út sérblaðið Hátíðarmatur í samstarfi við Hagkaup þann 7. desember 2023 þar sem útlistaðar voru uppskriftir að dýrðlegum jólamat.
Loading