Lögreglan í Eyjum rannsakar eitt kynferðisbrotamál

Margt er um manninn á þjóðhátíð.
Margt er um manninn á þjóðhátíð. mbl.is/Óskar

Nóg er að gera hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum vegna þjóðhátíðar. Allar fangageymslur voru fullar um stund og í fórum eins þjóðhátíðargestar fundust 40 grömm af kókaíni.

Þetta kemur fram í Facebook-færslu lögreglunnar.

Greint er frá því að vegna rigningar hafi færri verið í brekkunni í gærkvöldi og í nótt en gestum í fangageymslum fari fækkandi með morgninum.

Þá hafi fjórtán fíkniefnamál komið upp en í einu tilfelli hafi einstaklingurinn verið grunaður um sölu vegna þeirra 40 gramma af kókaíni sem að fundust í fórum hans.

„Eitt kynferðismál hefur verið tilkynnt lögreglu og rannsókn þess komin vel á veg. Tvær minniháttar líkamsárásir voru tilkynntar og einn aðili stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum vímuefna,“ stendur í færslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert