Hátíðin flutt úr Dalnum heim á lóð

Lilja og Halldór fyrir utan hvíta tjaldið, eitt helsta auðkenni …
Lilja og Halldór fyrir utan hvíta tjaldið, eitt helsta auðkenni Þjóðhátíðar í Eyjum. Þarna verður haldið upp á 26 ára brúðkaupsafmælið. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

Allt er til reiðu í Herjólfsdal fyrir Þjóðhátíð 2021, sem ekki verður. Ljósaskreytingar, brennan á Fjósakletti, götumerkingar fyrir hvítu tjöldin, myllan og vitinn svo helstu kennileiti séu nefnd eru á sínum stað. Það eina sem vantar eru hvítu tjöldin sem ekki verða reist þetta árið og ástæðuna þekkja allir, samkomubann í kófinu. Mikil vinna að baki og þúsundir sem stefndu á að eyða helginni við glaum og gleði í Eyjum um verslunarmannahelgina verða að bíða annað árið í röð.

Þjóðhátíð er stór hluti af bæjarsál Eyjamanna og -kvenna og börn í Vestmannaeyjum ekki gömul þegar þau fara að hlakka til hátíðarinnar. Það eru því nokkrir sem sjá ljósið í kófinu og halda sína eigin litlu Þjóðhátíð. Eru hjónin Lilja Ólafsdóttir og Halldór Sævarsson, sem búa í austurbænum í Vestmannaeyjum, meðal þeirra og taka þetta alla leið. Og ástæða til því þau gengu í það heilaga á setningu Þjóðhátíðar sumarið 1995.

Hvíta tjaldið miðpunkturinn

„Hér erum við með hliðið inn á hátíðarsvæðið, vitann, mylluna, tjörnina með sinni brú, brennuna og varðeldinn, brekku fyrir brekkusönginn og síðast en ekki síst hvíta tjaldið okkar sem er eins og alltaf miðpunkturinn,“ segir Halldór þegar hann leiðir blaðamann um lóðina sem myndar, líkt og Herjólfsdalur, skemmtilega umgjörð um hátíðina þeirra.

Tjaldið stendur við Reimslóð, sem er ein af götunum fyrir hvítu tjöldin, og er búið að skreyta það.

Lilja og Halldór eru búin að gera allt klárt heima …
Lilja og Halldór eru búin að gera allt klárt heima fyrir helgina, og skreyta bæði húsið og garðinn. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson

„Við erum með mexíkóskt þema þetta árið og verðum öll í búningum við hæfi. Dagskráin verður í anda Þjóðhátíðar, með setningu, kvöldvöku, brennu, söngva- og búningakeppni og miðnæturtónleikum öll kvöldin. Við erum meira að segja með þessa fínu brekku fyrir brekkusönginn,“ segir Lilja.

Erlendir gestir

Þau fá gesti, m.a. frá Belgíu og Úkraínu. „Þetta eru vinir okkar sem fyrir löngu ákváðu að koma á Þjóðhátíð og svo kemur vinur okkar sem hefur verið með okkur á hátíðinni í tíu eða tólf ár. Og þetta verður venjuleg Þjóðhátíð, bara heima en ekki inni í Dal. Verði brennan og flugeldasýning í Herjólfsdal kemur maður sér einhvers staðar vel fyrir og nýtur.“

Lilja Ólafsdóttir og Halldór Sævarsson giftu sig á þjóðhátíð í …
Lilja Ólafsdóttir og Halldór Sævarsson giftu sig á þjóðhátíð í Eyjum 1995 og eru hér með syni sínum, Sævari Vilberg.

Lilja segir að þau vilji halda í hefðina og ef það er ekki hægt í Dalnum er bara eitt ráð; að gera það heima. „Við höldum upp á brúðkaupsafmælið okkar og erum með vinum og fjölskyldu. Út á þetta gengur Þjóðhátíð og brúðkaupsafmælið okkar miðast við setningu Þjóðhátíðar á föstudegi á Þjóðhátíð, sama hver mánaðardagurinn er,“ segir Lilja og afhendir blaðamanni dagskrá hátíðarinnar.

„Það stefnir í gott veður um helgina eins og alltaf á Þjóðhátíð og við hlökkum til,“ sögðu Halldór og Lilja að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert