Ólíklegt að maðurinn sé erlendur ferðamaður

Jök­ulá­in er kol­mó­rauð og því þarf að leita nokkr­um sinn­um
Jök­ulá­in er kol­mó­rauð og því þarf að leita nokkr­um sinn­um Eggert Jóhannesson

Ólíklegt er að maðurinn sem féll í Gullfoss í gær sé erlendur ferðamaður, samkvæmt vísbendingum sem lögregla er að skoða. Þetta staðfest­ir Sveinn Kristján Rún­ars­son yf­ir­lög­regluþjónn í sam­tali við mbl.is.

Greint var frá því að maður hefði fallið í Gullfoss rétt fyr­ir klukk­an fimm í gær. Hann virðist hafa verið einn á ferð en sér­stak­lega er horft til bíls á bíla­stæðinu við Gull­foss sem talið er að maður­inn hafi komið í.

Sveinn Rúnar segir að leitin í dag verði með svipuðu móti og í gær, leitað verði upp og niður með ánni og leitarsvæðið stækkar. Hann segir að áin sé þannig að hægt sé að veltast um á sama stað í langan tíma.  Áin var vöktuð í nótt með fólki á nokkr­um stöðum en ekkert kom út úr því. 

Spurður hvort hægt sé að segja að svæðið sé hættulegt í ljós atburðarins segir Sveinn Rúnar að mikil bragarbót hafi orðið við Gullfoss á síðustu árum. Girðingum og keðjum hafi verið bætt við og fátt sé um slys. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert