Senda Grænlendingum 40 milljónir

Hér má sjá hvernig um­horfs varð skammt frá Nu­uga­atsiag í …
Hér má sjá hvernig um­horfs varð skammt frá Nu­uga­atsiag í kjöl­far þess að flóðbylgj­an gekk yfir. AFP

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun, að tillögu forsætisráðherra og utanríkisráðherra, að veitt verði 40 milljóna króna framlag til Grænlendinga í kjölfar tjónsins sem varð í kjölfar berghlaups í Karrat-firði í sveitarfélaginu Qaasuitsup á vesturströnd Grænlands síðastliðinn laugardag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Í framhaldi af atburðinum var því lýst yfir af hálfu almannavarna Grænlands að hætta væri á frekari skriðuföllum og lögreglan á Grænlandi hefur haft mikinn viðbúnað vegna málsins og fengið liðsstyrk frá Danmörku.

Í tilkynningunni segir að utanríkisráðherra Íslands hafi rætt við utanríkisráðherra Grænlands 18. júní sl. og boðið þegar fram aðstoð og stuðning íslenska ríkisins, jafnframt því að votta grænlenska ráðherranum samúð sína vegna atburðarins. 

Almannavarnir Grænlands hafi leitað til aðalræðisskrifstofu Íslands í Nuuk og óskað eftir aðstoð eða leiðbeiningum íslenskra jarðvísindamanna varðandi það hvernig hægt væri að koma upp sjálfvirkum búnaði sem nota mætti til viðvörunar ef frekari berghlaup yrðu á svæðinu. Í framhaldi af þessari beiðni hafi verið haft samband við Veðurstofu Íslands og komið á sambandi á milli vísindamanna Veðurstofu Íslands og Almannavarna. Á þessari stundu liggur ekki fyrir hvort grænlensk stjórnvöld muni óska eftir frekari aðstoð vegna þessa.

Að því er fram kemur í tilkynningunni verður 40 milljóna króna framlagi Íslands varið til stuðnings uppbyggingarstarfi fyrir þá íbúa í Qaasuitsup-sveitarfélaginu sem orðið hafa fyrir tjóni vegna hamfaranna. Auk þess verður Veðurstofu Íslands, eða annarri þar til bærri stofnun, gert kleift að veita nauðsynlega aðstoð varðandi uppsetningu viðvörunarbúnaðar, verði óskað eftir því.

„Þessi atburður hefur snert við okkur Íslendingum og það er mikilvægt að við veitum Grænlendingum stuðning við þessar erfiðu aðstæður og sérstaklega ánægjulegt ef stofnanir okkar geta komið að uppbyggingarstarfi og úrbótum sem unnið verður að í framhaldinu,“ er haft eftir Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert