Erdogan ýjar að starfslokum sínum

Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti á blaðamannafundi í dag.
Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti á blaðamannafundi í dag. AFP/Ozan Kose

Recep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti segir að sveitarstjórnarkosningarnar í lok þessa mánaðar verði þær síðustu sem hann komi að.

„Kosningarnar 31. mars verða þær síðustu fyrir mig,“ sagði Erdogan á fundi í dag. Þetta er í fyrsta sinn sem hann hefur viðrað opinberlega þá hugmynd að setjast í helgan stein.

Er­dog­an er 70 ára gam­all en hann var kjörinn forseti Tyrklands til fimm ára á síðasta ári. Fyrst tók hann við embættinu árið 2014 en hann var forsætisráðherra frá árinu 2003 til 2014. Hann var borgarstjóri Istanbúl frá árinu 1994 til 1998.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert