Sakfelldur fyrir 22 morð í Manchester

Frá Manchester Arena fyrir þremur árum þar sem árásin var …
Frá Manchester Arena fyrir þremur árum þar sem árásin var gerð. AFP

Breskur dómstóll hefur sakfellt Hashem Abedi fyrir að hafa orðið 22 að bana, en Hashem Abedi er bróðir Salmans Abedis sem sprengdi sig í loft upp á tónleikum í Manchester árið 2017. 

Hashem Abedi neitaði að hafa komið að því að skipuleggja árásina þar sem 22 létust og hátt í 1.000 særðust. 

Við málflutning fyrir breska sakamáladómstólnum Old Bailey kom fram að bræðurnir, sem fæddust í Manchester, hefðu í sameinginu útvegað sér efni til að nota í sprengjuna sem sprakk þegar tónlistarkonan Ariana Grande hélt tónleika í borginni 22. maí 2017, að því er segir á vef BBC. 

Hashem Abedi var einnig fundinn sekur um morðtilraun og fyrir sprengjusamsæri. 

Ákæruvaldið hélt því fram að Hashem bæri jafn mikla ábyrgð á árásinni fyrir þremur árum.

Hashem Abedi.
Hashem Abedi. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert