Nadine Guðrún Yaghi, forstöðumaður samskipta hjá flugfélaginu Play, segist ekki vera spá í að opna kaffihús og að hún þéni talsvert meira en unnusti hennar, Snorri Másson.
Þessu greindi Nadine frá á Instagram en tilefnið var hlaðvarpsþáttur Snorra, Skoðanabræður.
Í þættinum ræddi Snorri, ásamt bróður sínum Bergþóri, við tónlistarmanninn Patrik Atlason.
Meðal annars ræddu þeir hlutverk kynjanna og sagði Snorri að allir karlar myndu vilja geta haldið uppi heimili sínu án þess að konan þyrfti að vinna. Sagði hann það vera æðsta takmarkið.
„Já maður, hún eitthvað í Pilates,“ sagði Bergþór þá og Snorri bætti við: „Hún getur stofnað kaffihús“.
Þá sagðist Patrik vilja að konan hans þyrfti einungis að hugsa um börnin, heimilið og sjálfa sig og að hann hefði peningaáhyggjur. Snorri tók undir það og sagði það vera raunina á flestum heimilum.
„Vegna fjölda fyrirspurna er ég reyndar ekki að spá í að opna kaffihús enda þéna ég talsvert meira en maðurinn minn,“ sagði í færslu Nadine.
Snorri og Nadine eignuðust sitt fyrsta barn í fyrra og stefna á að gifta sig í sumar.
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, vakti athygli á viðtalinu í Facebook-færslu.
„Gömlukallaraus í ungum mönnum. Og ég sem vonaði að remburnar hyrfu með minni kynslóð. Einhvers staðar mistókst okkur herfilega,“ ritaði Ólafur.
Fjölmargir hafa skrifað ummæli við færsluna, meðal annars Egill Helgason fjölmiðlamaður sem segir að sömu skoðanir finnist í Sádi-Arabíu.