DiCaprio sagður hafa beðið kærustunnar

Leonardo DiCaprio og Vittoria Cetti eru yfir sig ástfangin.
Leonardo DiCaprio og Vittoria Cetti eru yfir sig ástfangin. Samsett mynd

Ítalska fyrirsætan Vittoria Ceretti er sögð trúlofuð Óskarsverðlaunaleikaranum Leonardo DiCaprio. Stærðarinnar demantshringur á baugfingri fyrirsætunnar vakti athygli nærstaddra á þriðjudag þegar parið naut hádegisverðar á veitingastað í Los Angeles.

DiCaprio og Ceretti hafa að mestu leyti haldið sambandi sínu fjarri sviðsljósinu, en parið kynntist þegar nýjasta kvikmynd DiCaprio, Killers of the Flower Moon, var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrra.

Allnokkur aldursmunur er á parinu, en DiCaprio fagnar fimmtugsafmæli sínu í ár. Ceretti er fædd árið 1998 og er því 24 árum yngri en leikarinn. Ein þekktasta kvikmynd DiCaprio, Titanic, er einu ári eldri en Ceretti. Hún var frumsýnd 1997. 

DiCaprio er einn af þekktustu kvennabósum Hollywood, en hann hefur slegið sér upp með þekktum leikkonum, fyrirsætum og áhrifavöldum í gegnum tíðina. Leikarinn er vel þekktur fyrir að slíta samböndum sínum þegar kærustur hans ná 25 ára aldri, en flestar konur sem hann hefur átt í sambandi við eru mun yngri en hann sjálfur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Dagurinn í dag er kjörinn til þess að taka ákvarðanir varðandi íbúðakaup. Hafðu trú á getu þinni til að skapa.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson