Nú hefur NRK afhjúpað að Sana Bakkoush verði aðalpersónan í 4 seríu af SKAM. Þættirnir hafa slegið í gegn um allan heim en þetta verður síðasta serían af SKAM. Hægt verður að sjá fyrstu klippuna á mánudaginn.
Julie Andem, höfundur SKAM greinir frá þessu á Instagram síðu sinni í dag. Hún segir að nýlega hafi verið ákveðið að framleiða ekki nýja seríu af SKAM í haust og að hún telji það hafa verið rétta ákvörðun. „Ég veit að mörg ykkar verða leið og vonsvikin af heyra þess en ég er viss um að þetta er rétt ákvörðun. Ekki vera leið, elsku SKAM aðdáendur, flottasti aðdáendahópur heims!“ skrifar Andem á Instagram.
Á vef NRK er rætt við Håkon Moslet hjá unglingastöð NRK sem segir að þættirnir hafi komið Noregi á kortið.
Leikkonan Iman Meskini fer með hlutverk Sönu en hún hefur vakið athygli fyrir persónuleika sinn og trú, en hún er múslími. „Hún er sterk persóna, og kannski sú forvitnilegasta. Hún er með einn fót í norsku samfélagi og einn í menningu íslam. Sana hefur trú sína á meðan vinir hennar pæla meira í strákum og djammi,“ sagði Moselt. Sagðist hann jafnframt telja að persóna Sönu hafi jákvæð áhrif á Norðmenn og gæti breytt steríótýpunni sem er í kringum þennan hóp. „Oft er litið á þær sem fórnarlömb, m.a. þegar þær klæðast hijab,“ sagði Moslet.
Stilku fyrir seríuna má sjá hér að neðan.