Ný þáttaröð í anda Skam

Fyrsta brotið úr þættinum Blank var sýnt á laugardagskvöldið.
Fyrsta brotið úr þættinum Blank var sýnt á laugardagskvöldið. Skjáskot/NRK

Norska ríkissjónvarpið (NRK) hóf á laugardag sýningar á nýjum unglingaþætti í anda Skam-þáttanna vinsælu. Nýju þættirnir heita Blank en sýningum á Skam, sem nutu fordæmalausra vinsælda, var hætt síðasta sumar.

Blank gerði ekkert boð á undan sér, þ.e. NRK hafði ekki auglýst þá fyrir fram. 

Persónur Blank eru um nítján ára gamlar og fjalla þættirnir um líf ungmenna í menntaskóla. Aðalpersónurnar heita Susanne, Mats og Ella, segir á sérstökum vef NRK um þættina. Þar má fylgjast með samskiptum persónanna, rétt eins og þær séu raunverulegar.

Aðeins tvö stutt myndskeið hafa verið birt nú þegar en NRK segir að þeim verði safnað saman á hverjum sunnudegi í heilan þátt. 

Frétt NRK um þættina.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er góður dagur til að ræða vandamál sem hafa komið upp í vinnunni. Reyndu að skoða málin frá öllum hliðum án tillits til þess hvað hentar þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir