Nýtt vörumerki og nýjar höfuðstöðvar dk

Nýjar höfuðstöðvar dk hugbúnaðar að Dalvegi 30.
Nýjar höfuðstöðvar dk hugbúnaðar að Dalvegi 30. Ljósmynd/Aðsend

Dk hugbúnaður hefur kynnt nýtt vörumerki og flutt höfuðstöðvar sínar í nýtt húsnæði að Dalvegi 30 í Kópavogi. Fyrirtækið var stofnað árið 1998 og var fyrsta varan framtalsforrit sem náði fljótt vinsældum. Dk hefur vaxið ört undanfarin ár og hafa tekjur fyrirtækisins tvöfaldast á síðustu sex árum.

Hugbúnaður dk er þróaður á Íslandi fyrir íslenskar aðstæður og hefur verið vinsæll viðskiptahugbúnaður hér á landi í rúmlega tvo áratugi. Í dag býður dk upp á alhliða viðskiptahugbúnað sem inniheldur m.a. bókhalds-, launa-, birgða- og afgreiðslukerfi ásamt því að reka eina stærstu hýsingarþjónustu landsins sem rúmlega þrjátíu þúsund fyrirtæki nýta sér, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Hulda Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri dk hugbúnaðar, segir margt hafi verið í gangi hjá fyrirtækinu að undanförnu.

„Við héldum upp á 25 ára afmæli síðasta haust, fluttum höfuðstöðvar okkar um áramótin í nýtt húsnæði á Dalvegi 30 auk þess sem vörumerki dk hefur fengið nýja ásýnd. Frá upphafi og í gegnum þessa vinnu var það markmið okkar að uppfæra ásýnd vörumerkisins en ekki að gjörbreyta því. Merkið vísar í eldri útgáfur merkja dk. Innblásturinn var sóttur bæði í ríka arfleifð og framtíðarsýn fyrirtækisins og táknar örin framþróunina sem dk stendur fyrir. Nýtt merki dk er táknmynd nýrra tíma sem byggja á sterkum grunni, sem er aflvaki framfara, nýsköpunar og samstarfs," segir Hulda í tilkynningunni.

Spennandi tímar

Fyrirtækið hefur þróað ýmsar aðrar nýjungar eins og dk One sem er app- og veflausn. Dk One appið er eins og framlenging á bókhaldskerfinu og hentar vel þeim notendum sem eru mikið á ferðinni og vilja geta nýtt nýjustu tækni. Dk One býður upp á sölukerfi, tímaskráningu, verkbókhald, samþykktarkerfi og að skrá kostnað með því að taka myndir af kvittunum sem tengist beint við bókhaldið svo fátt eitt sé nefnt.

Á síðasta ári kom út ný lausn í afgreiðslukerfinu, dk Pos App, þar sem rekstraraðilar geta verið með afgreiðslukerfi og posa í einu og sama tækinu sem jafnframt tengist bókhaldskerfi dk með einföldum hætti.

„Það eru spennandi tímar framundan hjá dk og erum við stöðugt að þróa nýjar lausnir og skapa aukið virði fyrir viðskiptavini okkar og þeirra viðskiptavini," segir Hulda ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka