Rúmlega 100 sýnendur taka þátt á Verk og vit

Frá síðustu Verk og vit sýningu árið 2022.
Frá síðustu Verk og vit sýningu árið 2022. Ljósmynd/Aðsend

Stórsýningin Verk og vit verður haldin í sjötta sinn dagana 18.-21. apríl 2024 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal.

Í fréttatilkynningu frá Verk og vit segir að á sýningunni kynni fyrirtæki og stofnanir í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum vörur sínar og þjónustu. Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardagana, en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana helgina 20.-21. apríl.

Hefur fest sig í sessi sem lykilviðburður

 „Mikill áhugi hefur jafnan verið á sýningunni, bæði meðal fagaðila og almennings, og hefur gestafjöldi verið um 25.000 síðustu ár en þetta er í sjötta sinn sem sýningin er haldin. Þannig hefur Verk og vit fest sig í sessi sem lykilviðburður og einskonar uppskeruhátíð í byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á Íslandi," segir Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, sem er framkvæmdaaðili sýningarinnar.

Samhliða sýningunni verður einnig haldin ráðstefna og aðrir viðburðir. Meðal sýnenda verða byggingaverktakar, verkfræðistofur, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki, framleiðendur, menntastofnanir og ráðgjafafyrirtæki og er mikill hugur í þeim að gera sýninguna sem glæsilegasta. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK