Um fjórföld eftirspurn í útboði Ísfélagsins

Uppsjávarskipin Sigurður VE-15 og Heimaey VE-1, sem bæði eru í …
Uppsjávarskipin Sigurður VE-15 og Heimaey VE-1, sem bæði eru í eigu Ísfélagsins, við bryggju á Þórshöfn. mbl.is/Líney Sigurðardóttir

Alls bárust um 6.500 áskriftir að andvirði um 58 milljarða króna í hlutafjárútboði Ísfélagsins sem lauk fyrr í dag, föstudag. Það samsvarar um fjórfaldri eftirspurn, þar sem til stóð að selja hluti að andvirði um 16 milljarða króna í útboðinu.

Í tilkynningu til fjárfesta á vef Ísfélagsins kemur fram að rúmlega fimmföld eftirspurn var eftir þeim hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók A og rúmlega þreföld eftirspurn var eftir hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók B. Heildarfjöldi seldra hluta í útboðinu nam um 118,9 milljón hlutum og heildarsöluandvirði útboðsins nam tæplega 18 milljörðum króna.

Í áskriftarbók A er útboðsgengi 135 kr. á hlut og nemur söluandvirðið um 3,2 milljörðum króna. Áskriftir starfsmanna félagsins og almennar áskriftir upp að 500 þúsund krónum að kaupverði voru ekki skertar, sem er í samræmi við skilmála útboðsins. Skerðing áskrifta var að öðru leyti hlutfallsleg.

Í áskriftarbók B, sem ætluð er fagfjárfestum, er endanlegt útboðsgengi 155 kr. á hlut og nemur söluandvirðið um 14,8 milljörðum króna. Skerðing áskrifta var í samræmi við skilmála útboðsins og í tilkynningunni kemur fram að fjárfestar sem tilgreindu lægra útboðsgengi fengu ekki úthlutun.

Fjárfestum verður tilkynnt um úthlutun í útboðinu eigi síðar en á mánudag, 4. desember. Gjalddagi áskriftarloforða er 6. desember næstkomandi og er ráðgert að afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fari fram þann 8. desember. Bréf félagsins verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar sama dag.

Einar Siguðsson, varaformaður stjórnar Ísfélagsins, og Stefán Friðriksson forstjóri.
Einar Siguðsson, varaformaður stjórnar Ísfélagsins, og Stefán Friðriksson forstjóri. Árni Sæberg

„Við erum hæstánægð með mjög góðar viðtökur í útboði Ísfélagsins sem endurspegla trú fjárfesta á bæði félagið og sjávarútveginn. Við bjóðum fjölbreyttan hóp hluthafa velkominn,“ segir Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélagsins, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK