Verð á fasteignum á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,17% í október, en það er minnsta hækkun milli mánaða frá því í júní 2015. Verð á sérbýlum hækkaði um 0,3% og verð á fjölbýli um 0,1%. Í Hagsjá Landsbankans kemur fram að hækkanir frá fyrra ári séu á hraðri leið niður, en hækkunin sé þó enn mjög mikil.
Samkvæmt tölum Þjóðskrár hefur verð á fjölbýli hækkað um 17% á síðustu 12 mánuðum og verð á sérbýli um 19%. Heildarhækkunin nemur 17,6%, sem er eilítið meira en í síðasta mánuði. Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur hækkað um 4,5% á síðustu sex mánuðum, en hækkaði um 12,5% næstu sex mánuði þar á undan.
Segir hagdeild bankans að meiri ró virðist nú ríkja á fasteignamarkaðinum en síðasta vetur og vor. Verðbólga hefur verið lítil og stöðug síðustu misseri og því hefur raunverð fasteigna hækkað mun meira en ella. Að undanskildum húsnæðiskostnaði hefur ríkt verðhjöðnun í hagkerfinu frá því um mitt ár 2016. Vísitala neysluverðs án húsnæðis í nýliðnum október var þannig 2,3% lægri en í október 2016. Raunverð fasteigna hefur því hækkað um rúm 20% á einu ári, frá október 2016 til október 2017.
Þá er bent á að viðskiptum með fasteignir hefur fækkað að undanförnu. Viðskiptum með fjölbýli hefur fækkað allt frá því í nóvember á síðasta ári, með smá stökkum upp á við inn á milli. Tölur í október núna eru þó mun lægri en í október í fyrra. Nemur samdrátturinn með fjölbýli og sérbýli rúmum 9% á þessu ári og er fjöldi samninga svipaður nú og á seinni hluta ársins 2015. Þá hefur sölutími fasteigna einnig lengst. Hvort tveggja ætti að geta stuðlað að meiri ró á markaðnum, að því er hagdeildin segir.
Að lokum segir að sé litið til breytinga á markaðinum síðustu sex mánuði og svo sex mánuðina þar á undan þá líti út fyrir að tímabil hóflegra verðhækkana sé runnið upp.