Svíar auðveldlega í undanúrslit

Jamina Roberts skorar eitt af fimm mörkum sínum í dag.
Jamina Roberts skorar eitt af fimm mörkum sínum í dag. AFP/Bo Amstrup

Gestgjafar Svíþjóðar tryggðu sér sæti í undanúrslitum HM 2023 í handknattleik kvenna með því að leggja Þýskaland að velli, 27:20, í fjórðungsúrslitum í Gautaborg í dag.

Svíþjóð var við stjórn allan leikinn og byrjaði stórkostlega.

Staðan var 7:0 þegar fyrri hálfleikur var rétt tæplega hálfnaður og munurinn orðinn tíu mörk, 16:6, þegar flautað var til hálfleiks.

Þrátt fyrir betri frammistöðu Þjóðverja í síðari hálfleik hleyptu Svíar þeim ekki nær sér en fjórum mörkum og niðurstaðan að lokum þægilegur sjö marka sigur.

Linn Blohm, Olivia Mellegard, Jamina Roberts og Nathalie Hagman voru markahæstar í liði Svíþjóðar, allar með fimm mörk.

Amelie Berger, Alina Grijseels og Viola Leuchter voru markahæstar hjá Þýskalandi, með fjögur mörk hver.

Svíþjóð mætir Frakklandi í undanúrslitum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert