Heimildamynd um meðgöngu Dagnýjar frumsýnd (myndskeið)

Dagný Brynjarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu.
Dagný Brynjarsdóttir í leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enska knattspyrnufélagið West Ham United er búið að frumsýna heimildamyndina Ómarsson, sem fjallar um meðgöngu Dagnýjar Brynjarsdóttur, fyrirliða kvennaliðs Hamranna.

Dagný eignaðist sinn annan son 7. febrúar síðastliðinn með eiginmanni sínum Ómari Páli Sigurbjartssyni. Fylgdi félagið Dagnýju eftir á meðan á meðgöngunni stóð.

Heimildamyndina, sem West Ham birti á YouTube-aðgangi sínum, má sjá í heild sinni hér:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert