Enn einn að framlengja við Real Madrid

Dani Carvajal.
Dani Carvajal. AFP

Evrópu- og Spánarmeistarar Real Madrid halda áfram að gera nýja samninga við lykilleikmenn sína.

Í dag skrifaði Dani Carvajal undir nýjan samning við Madridarliðið sem gildir til ársins 2022 en í síðustu viku framlengdu Isco og Marcelo samninga sína við meistaraliðið.

Bakvörðurinn hefur unnið 11 titla með Real Madrid frá því hann kom aftur til liðsins árið 2013 eftir að hafa spilað eitt tímabil með Bayer Leverkusen í Þýskalandi. Carvajal er 25 ára gamall og kom fyrst til Real Madrid þegar hann var aðeins 10 ára gamall.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert