Salah hafnaði viðtölum: Eldfimt ástand

Mo Salah byrjaði á bekknum og reifst við Klopp í …
Mo Salah byrjaði á bekknum og reifst við Klopp í dag. AFP/Ben Stansall

Egypski knattspyrnumaðurinn Mo Salah var ekki í góðu skapi er hann og liðsfélagar hans í Liverpool mættu West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Salah byrjaði á bekknum og reifst við knattspyrnustjórann Jürgen Klopp þegar hann var á leiðinni inn á sem varamaður undir lokin.

Eftir leik gekk Salah í gegnum fjölmiðlarými, hafnaði viðtölum og sagði einfaldlega: „Ef ég tjái mig breiðist út eldur.“

Salah hefur náð einstaklega góðum árangri hjá Liverpool undir stjórn Klopp, en eitthvað ósætti virðist vera á lokametrum samstarfs þeirra.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka