Klopp tjáir sig um orðróminn

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool. AFP/Ben Stansall

Jürgen Klopp knattspyrnustjóri Liverpool gaf lítið fyrir orðróm um að framherjinn Darwin Núnez myndi yfirgefa félagið í sumar.

Klopp lætur af störfum að yfirstandandi tímabili loknu en hann segist sjálfur ekkert hafa heyrt um að Núnez gæti gert slíkt hið sama. 

„Innan félagsins eru engar vangaveltur um framtíð hans. Það hlýtur að vera utanaðkomandi,“ sagði Klopp á blaðamannafundi. 

Liverpool mætir Aston Villa í næstsíðasta leik Klopps með liðið á mánudaginn kemur. Leikurinn verður í beinni textalýsingu á mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert