City vann Manchester-slaginn

Jessica Park skoraði tvö.
Jessica Park skoraði tvö. Ljósmynd/Manchester City

Manchester City fór upp í toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta er liðið vann 3:1-heimasigur á grönnum sínum í Manchester United í dag.

Hin 22 ára Jessica Park gerði tvö fyrstu mörkin á 37. og 45. mínútu og kom Manchester City í 2:0. Khadija Shaw bætti við þriðja markinu strax í upphafi seinni hálfleiks.

Kerstin Casparij gerði sjálfsmark á 73. mínútu og minnkaði muninn í 3:1, en nær komust gestirnir í United ekki.

City er nú í toppsætinu með 43 stig, þremur stigum meira en Chelsea sem á leik til góða. United er í fjórða sæti með 28 stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert