Hendrickx aftur til landsins en nú til Blika

Jonathan Hendrickx og Martin Lund verða nú samherjar.
Jonathan Hendrickx og Martin Lund verða nú samherjar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Breiðablik hefur samið við belgíska knattspyrnumanninn Jonathan Hendrickx og mun hann spila með liðinu á komandi keppnistímabili.

Hendrickx spilaði með FH árin 2015 og 2016 og varð Íslandsmeistari bæði árin. Hann byrjaði tímabilið í Hafnarfirðinum í ár en gekk til liðs við portúgalska B-deildar liðið Leixoes á miðju sumri. Hann er nú kominn aftur til landsins.

Hendrickx er 23 ára gamall og leikur jafnan í stöðu hægri bakvarðar, en hann kemur til landsins 1. desember og hefur þá æfingar með Blikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert